Sjúkrahótel Landspítala
Umhyggja - Fagmennska - Öryggi - Framþróun
Hagnýtar upplýsingar
Sjúkrahótel Landspítala er staðsett á lóð Landspítala Hringbraut í Reykjavík. (sjá kort)
Bílastæði í nánd við sjúkrahótelið eru gjaldskyld skammtímastæði. Greiða þarf fyrir bílastæði virka daga frá kl. 8.00 – 16.00. Greiða má bílastæðagjald ýmist með öppum, (Parka, Easy Park) eða í greiðsluskjám í andyri kvennadeilda, aðalinngangi Landspítala (bílastæðakort).
Gengið er inn um aðalinngang hótelsins gegnt inngangi kvennadeildar.
Landspítali rekur sjúkrahótelið og annast hjúkrunarþjónustu þess.
Sjúkrahótel Landspítala er á lóð spítalans við Hringbraut gegnt húsnæði kvennadeildar. Það er ætlað sjúklingum og aðstandendum þeirra sem teljast í þörf fyrir dvöl á sjúkrahóteli vegna heilbrigðisþjónustu sem þeir þurfa að sækja.
Sjúkrahótelið er fjórar hæðir og kjallari. Herbergi eru 75 talsins, fjölbreytt að gerð. Þar eru sérútbúin herbergi með aðstöðu fyrir hreyfihamlaða og stærri herbergi eru í boði fyrir fjölskyldur.
Í húsinu eru setustofur, veitingasalur og sólstofa fyrir gesti.
Sjúkrahótelið tengist deildum á Landspítala Hringbraut í kjallara með tengigöngum.
Á hótelinu er starfsmaður í móttöku allan sólarhringinn.
Greitt aðgengi er fyrir sjúklinga í alla nærliggjandi þjónustu Landspítala, dag-, göngu- og legudeilda við Hringbraut. Hægt er að sækja þjónustu Landspítala í Fossvogi með Skutlu Landspítala virka daga frá kl. 8:00- 16:40, sjá nánar hér.
Sjúkrahótelið er fyrir sjúklinga og aðstandendur þeirra sem heilsu sinnar vegna þurfa að dvelja fjarri heimabyggð vegna rannsókna eða meðferðar.
Þá sem dvalið hafa á sjúkrahúsi og þurfa að vera áfram nálægt sjúkrahúsinu vegna áframhaldandi meðferðar.
Umsóknarferli
Heilbrigðisstarfsmaður metur þörf fyrir dvöl á sjúkrahóteli og sendir beiðni fyrir hönd sjúklings um dvöl á sjúkrahóteli. Þar komi fram ástæðu dvalar, meðferðardagsetningar og nauðsynlegar heilbrigðisupplýsingar.
Gestir sjúkrahótels þurfa að vera sjálfbjarga, geta farið fram úr rúmi og sinnt daglegum athöfnum; klæða sig, sinna persónulegu hreinlæti, gengið á salerni og borðað í veitingasal.
Sjúklingar sem dvelja á sjúkrahóteli þurfa að hafa lokið meðferð á legudeild og teljast í stöðugu líkamlegu og andlegu ástandi.
Gestir hótelsins þurfa að hafa með sér öll eigin hjálpartæki svo sem hjólastóla, göngugrindur og hækjur. Sjúklingar koma með eigin lyf en geta fengið stuðning og ráðgjöf hjúkrunarfræðinga varðandi lyf og lyfjagjafir.
Skýringarmyndskeið um hvernig á að fylla út beiðnir í Sögu
Stuttar leiðbeiningar
- Læknir,hjúkrunarfræðingur eða ljósmóðir fyllir út umsókn um gistingu á Sjúkrahóteli Landspítala í Heilsugátt. Allir notendur sjúkraskrár Sögu hafa einnig aðgang að Heilsugátt.
- Dvalartími ákvarðast af meðferðardagsetningum og heilsutengdri þörf fyrir dvöl á sjúkrahóteli.
- Hámarksdvöl á sjúkrahóteli er 21 dagur.
- Sjúklingar dvelja á sjúkrahóteli á meðan þeir eru að sækja virka meðferð. Mat á dvalartíma ræðst af meðferðartíma og fjarlægð frá heimabyggð. Ef hlé er gert á meðferð útskrifast sjúklingur heim öllu jafnan.
- Breytingar geta komið til á dvalartíma í samræmi við hugsanlegar breytingar á meðferðarþörf sjúklings.Ef Heilsugátt er ekki sýnileg í Sögu skal leita til kerfisstjóra viðkomandi heilbrigðisstofnunar.Þeir sem ekki eru með aðgang að rafrænni sjúkraskrá geta leitað aðstoðar við gerð beiðna í síma 5900700.
- Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar sjúkrahótelsins veita aðstoð og ráðgjöf vegna hvers konar heilsufarsvanda.Sjúklingar hafa aðgang að því að sækja í hópsjúkraþjálfun á Landspítala tvisvar í viku.
- Hægt er að leita til starfsfólks sjúkrahótelsins allan sólarhringinn. Læknir eða hjúkrunarfræðingur sækir um þá hjúkrunarþjónustu sem þörf er á um leið og beiðni um dvöl á sjúkrahóteli er útfyllt. Þar er skráð hvers konar þjónustu þörf er á, hvers vegna og hver er áætlaður dvalar- og meðferðartími.
Í hjúkrunarþjónustu sjúkrahótels felst meðal annars:
- Heilbrigðisþjónusta, ráðgjöf og stuðningur í samræmi við sjúkdómsástand
- Skipulagning meðferðarþátta og úrræða
- Eftirlit með lífsmörkum
- Lyfjagjafir
- Sárameðferð
- Byltuvarnir
- Umhirða drena og stóma
- Viðbrögð við óvæntri versnun
Heilbrigðisstarfsmenn eru bakhjarlar sjúklinga á sjúkrahóteli, annast eftirlit og fræðslu. Þeir úthluta herbergjum í samræmi við þarfir sjúklings við innritun á sjúkrahótelið.
- Kostnaður fyrir sjúklinga er kr. 1.890 á sólarhring.
- Kostnaður fyrir aðstandendur er kr. 6.860 á sólarhring.
- Börn sem sjúklingar greiða ekkert fyrir dvöl. Fylgdarmaður borgar ekki gistigjald en greiðir fæðisgjald kr. 4.790 á sólarhring.
- Börn sem fylgdarmenn frá 1-13 ára aldri greiða hálft fæðisgjald kr. 1.889 á sólarhring en ekkert dvalargjaldÓsjúkratryggðir einstaklingar greiða kr. 41.395 á sólarhring fyrir dvöl miðað við 1 gest í herbergi og kr. 49.273 á sólarhring ef tveir gestir eru í herbergi.
- Innifalið er fullt fæði sem eldað er á staðnum. Ekki er hægt að undanskilja fæði frá sólarhringsgjaldi.
Í veitingasal á jarðhæð er borinn fram morgunmatur, hádegismatur og heitur matur á kvöldin.
Afgreiðslutími:
Virkir dagar
- Morgunverður kl. 08:00-09:30
- Hádegisverður kl. 12:00-13:30
- Kvöldverður kl. 17:30-19:00
Helgar
- Morgunverður kl. 08:30-10:00
- Hádegisverður kl. 12:30-14:00
- Kvöldverður kl. 17:30-19:00
Veitingasalur sjúkrahótelsins er eingöngu fyrir innritaða gesti sem dvelja á hótelinu.
Ekki er greitt fyrir mat í matsalnum. Fæðisgjald er greitt við útskrift í samræmi við gjaldskrá. Fæðisgjald er hluti dvalarkostnaðar á sjúkrahóteli.
Ekki er hægt að panta mat á herbergi nema við sérstakar aðstæður í samráði við heilbrigðisstarsfólk.
Á sjúkrahótelinu er boðið upp á einbýli með tveimur rúmum og geta aðstandendur eða fylgdarmenn sjúklinga dvalið ásamt sjúklingi gegn gjaldi. Öll herbergi eru með sjónvarpi, síma og öryggishólfi. Aðgangur að interneti er innifalinn. Hótelið er reyk- veip- rafrettu- og vímulaust með öllu. Sé reykingar- og vímuefnabann ekki virt getur það orðið til brottvísunar.
Panta má herbergi með aðgengi fyrir hjólastóla auk þess sem eitt herbergi er sérútbúið fyrir mikið hreyfihamlaða, með lyftu í lofti yfir rúmi yfir á salerni og möguleika á að tengja aðliggjandi herbergi fyrir fylgdarfólk jafnt sem fjölskyldu.
Salernisaðstaða inni á herbergjum:
Sérútbúið sjúklingaherbergi með lyftu á milli rúms og baðherbergi:
Í hverju herbergi eru tvö einbreið rúm:
Í hverju herbergi eru tvö einbreið rúm sem hægt er að festa saman eða hafa aðskilin. Hægt er að óska eftir auka bedda, rimlarúmi eða vöggu.
Rúmgott salerni með sturtu og sturtustól er í öllum herbergjum. Hjúkrunarfræðingar úthluta sérútbúnum herbergjum með hjólastólaaðgengi, rafmagnsrúmi eða sérhæfðum búnaði í samræmi við þarfir sjúklinga hverju sinni.
Hægt er að fá afnot af sturtustól, hliðargripi á rúm og upphækkun á salerni eins og kostur er. Ekki er hægt að tryggja aðgang að hjálpartækjum, þeir sem geta ekki án þeirra verið þurfa að gæta þess að hafa hjálpartæki sín meðferðis.
Búnaður:
- Lesljós
- Ísskápur
- Sjónvarp
- Hárþurrka
- Sími
- Þráðlaust net
- Neyðarbjalla
- Salerni
- Sturta
Aukarúm
Hægt er að fá til afnota aukarúm á herbergi ef fleiri en tveir gestir gista. Taka skal fram í beiðni ef óskað er eftir aukarúmum og gjarnan hvort óskað sé rimlarúms eða vöggu.
Sameiginleg aðstaða gesta
Á sjúkrahóteli eru tvær setustofur eða samvistarrými með eldhúskrók. Sólstofa er á 4. hæð með fallegu útsýni yfir borgina. Í eldhúskrók er örbylgjuofn, hitakanna, eldavél og ofn. Hótelsgestir eru beðnir að vanda umgengni á setustofum. Hótelsgestir ganga sjálfir frá og þrífa á setustofu eftir notkun hennar eins og við á.
- Herbergi eru þrifin einu sinni í viku
- Sorp er losað úr herbergjum daglega
- Handklæðum er skipt út þriðja hvern dag
- Skipt er á rúmum vikulega
Á sjúkrahóteli eru sömu heimsóknartímar og annarsstaðar á Landspítala. Takmarkanir á heimsóknum er hagað í samræmi við ákvarðanir Landspítala hverju sinni (sjá heimsóknartímar)
Hafa þarf í huga að dvöl á sjúkrahóteli er hluti af batarferli sjúklinga og því mikilvægt að tryggja að þar sé friðsælt og virðing í hávegum höfð fyrir hvíldarþörf þeirra sem þar dvelja. Ró sé komin á í húsinu kl. 22:00.
Sjúkrahótelið fékk fékk 81% stiga í hönnunarvottun hússins og hlaut því svokallaða „Excellent“ einkunn samkvæmt BREEAM kerfinu. Er þetta hæsta einkunn sem bygging hefur fengið í BREEAM hönnunarvottun á Íslandi.
Horft var til umhverfisstjórnunar, heilsu og vellíðunar, orku, samgangna, vatns, byggingarefna, úrgangs, landnotkunar, vistfræði og mengunar. Sérstaklega var hugað að atriðum sem bættu innivist byggingarinnar, einkanlega hvað varðar loftgæði og val á byggingarefnum eins og gólfefnum, loftaefnum, málningu, lími og lökkum. Slík byggingarefni innihalda undir ákveðnum mörkum af rokgjörnum lífrænum efnum t.d. formaldehíði. Framkvæmdin skoraði hátt í aðgengi að vistvænum samgöngum svo sem góðri aðstöðu fyrir hjólandi og rafbílastæðum. Öruggar göngu- og hjólaleiðir verða einnig á Landspítalalóðinni.
Ítarefni um verkefnið, orkunotkun og aðra þætti sjálfbærnivottunar BREEAM má finna á vef Framkvæmdasýslu ríkisins.
Unnið er að úttekt á fullnaðarvottun.