Vísindi á vordögum 2025
Vísindi á vordögum er uppskeruhátíð vísindastarfs á Landspítala sem hefur verið haldin árlega í 25 ár en hún hefur verið haldin árlega síðan 2001 og að venju í lok apríl eða byrjun maí. Á hátíðinni er farið yfir árangur af vísindastarfi á Landspítala árinu áður, framúrskarandi vísindamenn spítalans heiðraðir, veittar viðurkenningar og verðlaun auk þess sem styrkir úr Vísindasjóði Landspítala og aðrir styrkir eru afhentir með formlegum hætti.
Það voru þau Gísli Einarsson fyrrum yfirlæknir og framkvæmdastjóri Kennslu, Vísinda og Þróunar á Landspítala og Sigurlaug Sveinbjörnsdóttir taugalæknir sem hófu þessa vegferð. Hátt í 60 veggspjöld eru kynnt á hátíðinni í ár og má segja að gangar Barnaspítala Hringsins séu veggfóðraðir með vísindum eins og fyrra ár. Framúrskarandi vísindafólk er heiðrað, verðlaun veitt og styrkir formlega afhentir. Með vor í hug og hjarta er litið yfir nýliðið ár í vísindastarfi á Landspítala og horft björtum augum til framtíðar.
Vísindaráð Landspítala ber veg og vanda að dagskrá og skipulagi Vísinda á vordögum.
Stjórn Vísindasjóðs Landspítala hefur lokið úthlutun fyrir árið 2025 í samræmi við tillögur Vísindaráðs Landspítala sem hefur yfirumsjón með faglegu mati styrkumsókna ár hvert. Sjóðurinn hafði til úthlutunar um 125 milljónir króna og barst sjóðnum 77 umsóknir um rannsóknarstyrk. Fjórir umsækjendur fengu Hvatningastyrk að upphæð 5 milljónir. Við yfirferð á umsóknum er stuðst við mat utanaðkomandi sérfræðinga á sviði verkefna skv. skilgreiningum sem fram koma á Matsblaði Vísindaráðs fyrir vorstyrki Vísindasjóðs auk þess sem ráðsmenn fara yfir hverja umsókn til samræmingar. Vegna fjölda umsókna var ekki unnt að veita fullan styrk til þeirra verkefna sem sótt er um en ákvörðuð matsstig eru notuð til útreikninga á endanlegum styrk sem veittur eru til verkefnis.
Hér má sjá dreifingu styrkumsókna og styrkja eftir kjarnasviðum Landspítala.
Úthlutun eftir sviðum |
Fjöldi umsókna (styrkjaflokkur A) |
Fjöldi nýrra verkefnastyrkja |
Heildarupphæð styrkja |
Fjöldi framhaldsstyrkja |
Heildarupphæð framhaldsstyrkja |
Annað |
11 |
9 |
16.831.000 |
3 |
3.906.000 |
Bráða-, lyflækninga- og endurhæfingaþjónusta |
15 |
12 |
23.731.000 |
3 |
4.084.000 |
Geðþjónusta |
5 |
1 |
7.903.000 |
4 |
1.940.000 |
Hjarta-, augn- og krabbameinsþjónusta |
10 |
7 |
15.915.000 |
3 |
4.735.000 |
Klínísk rannsóknar- og stoðþjónusta |
15 |
10 |
27.580.000 |
5 |
8.805.000 |
Kvenna- og barnaþjónusta |
5 |
5 |
7.095.000 |
0 |
- |
Skurð- og gjörgæsluþjónusta |
5 |
5 |
5.622.000 |
0 |
- |
Samtals |
66 |
49 |
104.677.000 |
18 |
23.470.000 |
Fjöldi þeirra sem heimsóttu vefsíðu veggspjalda mældist mun meiri en á hefðbundinni veggspjaldasýningu. Þó má ekki draga úr mikilvægi þess að hitta og ræða við vísindamennina sjálfa og fræðast um verk þeirra. Enn verðum við að bíða aðeins með það því að veggspjaldakynningin verður nú aftur á rafrænu formi. Í ár verða hins vegar einnig hengd upp veggspjöld þeirra vísindamanna sem það kjósa fyrir framan Hringsalinn, gestum og gangandi til skemmtunar og fróðleiks, og til marks um grósku vísindanna á Landspítala.
Í vinnslu...
Velkomin á Vísindi á vordögum, uppskeruhátíð vísinda á Landspítala!
25 ár eru liðin frá því að fyrst var haldin vísindadagskrá að vorlagi undir heitinu Vísindi á vordögum. Var hún skipulögð af læknunum Gísla Einarssyni og Sigurlaugu Sveinbjörnsdóttur sem í ár veita í fyrsta sinn vísindastyrk úr sjóði sem stofnað var til vegna strokerannsókna á Landspítala og SHR í samstarfi við deCode genetics.
Vísindi á vordögum er sýnigluggi þeirrar vísindastarfsemi sem fram fer á Landspítala. Þar gefst okkur kostur á að sjá það sem best er gert í vísindastarfi spítalans, skiptast á hugmyndum, mynda tengsl milli rannsóknarhópa og læra helstu nýjungar á öllum fræðasviðum. Samskiptin við háskólana og nýsköpunarfyrirtæki innan lands og utan er mikilvæg og stuðlar að því að brúa bilið á milli grunnvísinda og klínískra rannsókna. Hagnýting vísindalegrar þekkingar stuðlar að nýsköpun og er forsenda framþróunar, öryggis og gæða í heilbrigðisþjónustu. Þannig myndar vísindastarfið einn af þremur grunnstoðum háskólasjúkrahússins, sem eru klínísk þjónusta, menntun heilbrigðisstétta og vísindastarf.
Vísindaráð Landspítala hefur nýlega sent forstjóra og framkvæmdastjórn uppfærða vísindastefnu spítalans og hefur hún verið kynnt stjórn og fagráði spítalans. Í vísindastefnunni eru sett fram rúmlega fjörutíu markmið og leiðir í framþróun vísindastarfs á spítalanum. Næsta skref er að setja fram aðgerðaráætlun til að framfylgja vísindastefnunni þar sem samráð verður haft við forstöðumenn fræðasviða og yfirmenn klínískra eininga. Fyrstu áhersluatriði sem hrint verður í framkvæmd er að skapa aðstöðu til klínískra rannsókna á spítalanum, að stofna fjórar nýdoktorastöður til klínískra rannsókna á næstu tveimur árum, að í starfslýsingum og ráðningarsamningum verði skilgreint starfshlutfall til kennslu og rannsókna, formlegu samstarfi verður komið á við nýsköpunarfyrirtæki og breytingar verða gerðar á úthlutunarreglum Vísindasjóðs með það að markmiði að veita stærri rannsóknarstyrki til öflugra og metnaðarfullra vísindaverkefna.
Vísindastarf á Landspítalanum er fjölbreytt, þverfaglegt og af háum gæðum. Við horfum til framtíðar og stefnum á að vísindastarf á Landspítalanum nái aftur fyrri stöðu að vera sambærilegt við háskólasjúkrahús á hinum Norðurlöndunum að magni og gæðum. Til þess þarf að bæta fjármögnun og er stefnt að því að hlutfall vísinda í heildarveltu spítalans nái 3% innan fárra ára.
Uppskeruhátíð vísindanna hefur ekki síst það hlutverk að efla vísindastarfið með því að gera það sýnilegra og aðgengilegra, vekja áhuga ungra og upprennandi vísindamanna og skapa tengsl og samstarf milli rannsóknarhópa. Þar höfum við öll hlutverki að gegna.
Gleðilega hátíð.
Hlutverk Landspítala er þríþætt; Að veita heilbrigðisþjónustu, skapa nýja þekkingu með rannsóknum og mennta heilbrigðisstarfsfólk. Nauðsynlegt er að haldið sé vel utan um þá grunnstoð sem vísindastarfið er enda er það deginum ljósara að vísindi auka fagmennsku, gæði og öryggi og eru forsenda framþróunar í heilbrigðisþjónustu og menntun starfstétta.
Starfsmenn vísindadeildar hafa til margra ára tekið saman árlegt yfirlit um vísindastarf á Landspítala og birtir hina árlegu samantekt á Vísindum á vordögum ár hvert. Gagna sem eru lýsandi fyrir virkni í vísindum s.s. birtingar vísindagreina, styrkfjárhæðir til vísindarannsókna, fjöldi nýrra vísindarannsókna, fjöldi meistara- og doktorsnema er víða aflað og er yfirlitið unnið í samstarfi við forstöðumenn og forsvarsmenn fræðisviða og fræðigreina auk tengiliða. Regluleg úttekt á vísindastarfinu og niðurstöður hennar er mikilvægur þáttur í að meta árangur vísindastefnu Landspítala á hverjum tíma auk þess sem yfirgripsmikil þekking á áhrifum aðgerða í þágu vísindastarfs næst.
Yfirlit 2024:
- Vísindastarfið 2024 (litla heftið)
- Vísindastarfið 2024 (stóra heftið)
Sjá einnig yfirlit síðustu ára:
- Vísindastarfið 2022 (litla heftið)
- Vísindastarfið 2022 (stóra heftið)
- Vísindastarf á Landspítala 2019 (litla heftið)
- Vísindastarf á Landspítala 2019 (stóra hefið)
- Vísindastarf á Landspítala 2018 (litla hefti)
- Vísindastarf á Landspítala 2018 (stóra heftið)
Safn yfirlita: Yfirlitsskýrslur
Tilgangur sjóðsins er að styðja við vísindastarf starfsfólks Landspítala með því að hvetja vísindafólk til að birta rannsóknir sínar í erlendum tímaritum með háan áhrifastuðul og verja tíma sínum í leiðandi hlutverki í metnaðarfullum rannsóknarverkefnum. Umsækjendur þurfa að vera fyrsti eða síðasti höfundur á vísindagrein sem lýsir rannsóknaniðurstöðum verkefna sem unnin eru á Landspítala og eru merktar honum eins og fram kemur í 2. grein í reglum sjóðsins. Starfsmenn í a.m.k. 50% starfi geta sótt í sjóðinn. Ef fyrsti og síðasti höfundur birtrar greinar eru báðir starfsmenn eiga þeir báðir kost á að sækja um í sjóðinn. Skilyrði fyrir styrkveitingu er að vísindagreinin hafi birst í viðurkenndu ritrýndu erlendu fagtímariti og fer upphæð styrks eftir flokki tímarita eftir áhrifastuðli tímarits. Styrkir sem veittir eru úr sjóðnum eru ekki bundnir við að greiða niður birtingarkostnað heldur ræður styrkhafinn hvernig hann nýtir styrkinn. Dagleg umsýsla sjóðsins er í höndum verkefnastjóra Vísindaráðs hjá Vísindadeild.
Birtingasjóður-yfirlit styrkúthlutunar 2024
Á vefsíðu Landspítala er að finna ýmsar hagnýtar og fræðandi upplýsingar um vísindastarfsemina á spítalanum.
- Vísindastarf á Landspítala
- Vísindastefna Landspítala 2019-2025